Staðan sér um bókhaldið. Þú segir bara já.

Tengdu bókhaldið við Claude eða ChatGPT

Spurðu hver staðan er og fáðu svar úr bókhaldinu og póstinum, á mannamáli. Staðan undirbýr, en ekkert er bókað nema þú samþykkir.

Prófa frítt í 30 daga

Engin binding. Sýnifyrirtækið er opið öllum og gögnin í því eru skálduð.

Hver er staðan?

Hagnaður ársins er 6.847.854 kr. og Norðurljós hönnun ehf. á 18.167.668 kr. í banka.

Þrír reikningar, samtals 974.020 kr., eru gjaldfallnir. Stærsti skuldarinn lofaði í pósti 14. október að greiða fyrir mánaðamót.

Bíður samþykkisDrög að gjaldi frá prentsmiðju, 86.800 kr. með 24% VSK.

Dæmi með skálduðu fyrirtæki

Gervigreindin undirbýr. Þú ákveður.

Les

Stöðu í banka, skýrslur, reikninga, kröfur og laun.

Gerir drög

Reikninga, gjöld, færslur, VSK-skýrslur og laun. Drög hafa engin áhrif á bókhaldið.

Biður um samþykki

Útgáfa reikninga, bókun, laun og skil. Manneskja ákveður alltaf, og bókuðum færslum er aldrei breytt, aðeins bakfært.

Heilt bókhaldskerfi undir

Allt virkar líka án gervigreindar.

Yfirsýn

Forsíða á mannamáli þar sem hver tala skýrir sig sjálf.

Sala

Reikningar í krónum og erlendri mynt, kreditreikningar og endurteknir reikningar.

Gjöld

Fylgiskjalið við hlið skráningar og tillaga að lykli og VSK.

Banki

Bankayfirlit lesin inn og afstemming sem skýrir hverja krónu.

Bókhald

Dagbók, bakfærslur með skýringu og lokun tímabila.

Skýrslur

Rekstrar- og efnahagsreikningur, prófjöfnuður og aldursgreining.

Skattar

VSK-skýrsla, skilagrein staðgreiðslu og drög að ársreikningi.

Laun

Launakeyrslur með staðgreiðslu, lífeyrissjóði og tryggingagjaldi.

Verð

Öll verð eru án VSK. Grunnur og Rekstur eru fríir í 30 daga og engin binding.

Frítt

Fyrir þá sem senda fáa reikninga.

0 kr.

á mánuði án VSK

  • Allt að 3 reikningar á mánuði
  • Reikningar á PDF með greiðsluupplýsingum
  • Einn notandi
Byrja frítt

Grunnur

Fyrir einyrkja og eigendur sem greiða sér laun.

3.490 kr.

á mánuði án VSK

  • Reikningar, gjöld og bankaafstemming
  • VSK-skýrslur og drög að ársreikningi
  • Laun fyrir einn, til dæmis eigandann: staðgreiðsla og skilagreinar
  • Tenging við Claude og ChatGPT
  • Tveir notendur
Byrja frítt

Rekstur

Fyrir fyrirtæki með starfsfólk á launum.

9.990 kr.

á mánuði án VSK

  • Allt sem er í Grunni
  • Laun, staðgreiðsla og skilagreinar fyrir allt að 15 launþega
  • Ótakmarkaður fjöldi notenda, til dæmis fyrir bókarann
Byrja frítt
  • Ársáskrift: tveir mánuðir fríir.
  • Flutningur er innifalinn: við færum bókhaldið úr gamla kerfinu yfir með þér, án aukagjalds.
  • Bókhaldsstofa með fimm fyrirtæki eða fleiri? Hafðu samband um sérkjör.
  • Kröfur í netbanka eru væntanlegar.

Algengar spurningar

Þarf ég að nota gervigreind?

Nei. Þetta er heilt bókhaldskerfi sem virkar án hennar. Tengingin við Claude eða ChatGPT er valfrjáls.

Hvað kostar gervigreindin?

Þú notar þína eigin áskrift að Claude eða ChatGPT. Í ChatGPT þarf Business- eða Enterprise-áskrift til að gervigreindin geti gert drög.

Getur gervigreindin ruglað bókhaldinu?

Hún getur gert drög en ekki bókað. Allt sem hefur áhrif á bókhaldið þarf samþykki manneskju, og bókuðum færslum er aldrei breytt, aðeins bakfært.

Get ég skilað beint til Skattsins?

Ekki enn. VSK-skýrsla og skilagrein staðgreiðslu eru undirbúnar og villuprófaðar í kerfinu, þú skilar á þjónustuvef Skattsins og skráir skilin. Bein skil koma síðar.

Kemur þetta í stað bókarans?

Nei. Bókarinn ykkar fær aðgang, sér öll sín fyrirtæki á einum stað og fær drögin tilbúin til yfirferðar.

Get ég tekið gögnin með mér?

Já. Þú getur sótt allt bókhaldið hvenær sem er.